mATX kassar takmarka yfirleitt bara móðurborðið við mATX, þ.e. það er styttra á hæðina séð (stuðningur við 4 raufar í stað 7).
Báðir þessir kassar taka við venjulegum ATX aflgjöfum
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Ég get ekki commentað á CoolerMaster kassann, en ég hef sett saman nokkrar vélar í Corsair Carbide 88R, m.a. eina sem er í daglegri notkun hjá kærustunni, og þetta eru mjög fínir budget kassar.
Þægilegt að púsla í þá, og það er alltaf smá gaman að hafa gluggahlið
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Þú þarft ekki fleiri en 1 viftu fyrir svona vél, ákveðið jafnvægi sem næst þar sem það er 1x vifta að framan sem fylgir kassanum og blæs inn í hann, og 1x vifta í aflgjafanum sem blæs lofti út að aftan.