Hefur einhver kynnt sér þetta, er ekkert sérstaklega hrifinn af hugmyndinni að það eigi eftir að grilla í manni heilann fyrir hraðara internet
![Confused :?](./images/smilies/icon_confused.gif)
chaplin skrifaði:Ekki hafa neinar áhyggjur, 5G er fullkomlega öruggt.
GuðjónR skrifaði:Ég held að það sé hollt fyrir allt hugsandi fólk að hafa áhyggjur að þessari þráðlausu þróun.
Við höfum ekki hugmynd um það ennþá hvaða áhrif þessi stanslausa geislun á eftir að hafa, ekki bara á okkur heldur líka á aðrar viðkvæmari lífverur í vistkerfinu.
Ég tek öllum hughreystingum frá alþjóðastofnunum með fyrirvara, við vitum að peningar knýja þær áfram og við vitum hvaðan peningarnir koma.
Eruði nokkuð búin að gleyma því sem Einstein sagði?
chaplin skrifaði:Síðast þegar ég sá þetta quote þá fletti ég því upp og niðurstaðan var sú að það eru ekki til neinar heimildir að Einstein hafi sagt þetta, aftur á móti skrifaði rithöfundurinn Maurice Maeterlinck, “If the bee disappeared off the face of the earth, man would only have four years left to live.” í bókinni The Life of the Bee.
Ég er sammála því að það eigi að "question authority", en það að fara í samsæriskenningar og eingöngu að samþykkja rannsóknir sem "fitta" þinni skoðun er stórhættulegt. Þegar ég segi "þinni" skoðun þá á ég ekki við einhvern einn og ákveðin aðila heldur alla.
Endalaus hræðsluáróður, falsfréttir og fáfræði er undirstaða þeirra sem eru á móti bólusetningum, öfgahópa (hægri/vinstri) o.s.frv. - við skulum forðast það að stimpla 5G eitthvað sem það er ekki.

Theraiden skrifaði:Text
GuðjónR skrifaði:Talandi um þetta, veit einhver hversu mörg W eða mW venjulegur farsímasendir er, þ.e. sendirinn í símanum sjálfum?
jonsig skrifaði:Ég væri sáttur ef farsímafyrirtækin kláruðu fyrst 4G dreifikerfið.
Theraiden skrifaði:og líka þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=ol3tAxnNccY&t=20m33s
chaplin skrifaði:Theraiden skrifaði:og líka þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=ol3tAxnNccY&t=20m33s
Okey, núna verður þú aðeins að taka tvö skref til baka. - Maðurinn bakvið New Earth Project heldur líka að fæðingarvottorð séu seld á hlutabréfamarkaði. Þegar þú ert farinn að vísa í slíkar heimildir, fyrst Bioinitiative og núna New Earth Project, að þá ertu að reyna of mikið að finna "sannanir" fyrir því að 5G sé skaðlegt.
jonfr1900 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Talandi um þetta, veit einhver hversu mörg W eða mW venjulegur farsímasendir er, þ.e. sendirinn í símanum sjálfum?
Sendar eru frá 500mW til 100W í þéttbýli en sendar uppi á fjöllum eru kannski 1kW stærstir. Farsímar eru oftast að senda frá sér á 100mW en geta farið upp í 1W (1800/1900/2100/2600/3500*/3700*Mhz) og síðan 2W (700/800/900Mhz) á lægri tíðnum. Farsímar nota eingöngu mikið sendiafl þegar merkið er mjög slæmt, annars er sendiafl farsíma frá 10mW og upp í 500mW í venjulegri notkun eftir staðsetningu og öðrum atriðum.
*Væntanlegt með 5G farsímum.