Ég átti áhugavert samtal við vin minn sem er fjárfestir um tækifæri í verðbólgu, þar sem peningar séu núna búnir að missa verðmæti sitt mikið og lítið um góð tækifæri til að ávaxta þá. Hann benti mér á "trikk" sem fáir vita af nema fjársterkir aðilar sem mig langar að share-a með ykkur, það að fjárfesta í eftirsóttum skúlptúrum eða málverkum. Í verðbólgu munu nefnilega einhverjir þurfa að selja listaverkin sín til að borga upp skuldir. Þetta sé tækifæri til að kaupa þau á betri kjörum en vanalega. Þá sé jafnvel hægt að fá þau undir ásettu uppboðsverði ef maður sé mjög heppinn, þetta sé nú uppboð og allt geti gerst. Svo þarf bara að bíða aðeins, hann talaði um að ca. 6 - 12 mánuðir séu oftast nóg, selja síðan verkið aftur með gróða þegar verðbólgan hjaðnar, þetta hefði hann sjálfur stundum gert í gegnum tíðina.
Hann benti mér á uppboð sem er núna á mánudaginn (8. maí) í gallerý fold (
https://www.myndlist.is/auction/Auction ... ebStatus=1), þar séu nokkur eftirsótt verk eftir fræga málara td. Alfreð Flóka, Kjarval og meira að segja verk eftir eftirsótta listamenn eins og Þórarinn B. Þorláksson, sem sjaldan sjáist á sölu, og að það sé gott merki um að einhvern vanti pening.
Hann tók sem dæmi verkið eftir Þórarinn (þetta málverk:
https://www.myndlist.is/auction/Auction ... emID=28004), að ásett verð
(2.800.000 - 3.200.000) sé vel undir því sem mætti búast við
(hann talaði um að eðlilegt verð væri líklega nær 4 - 5 milljónum) og þarna væri því gott tækifæri. Það væri hægt að bjóða ca. 70-80% af uppsettu verði í verkið
(ca. 2 til 2.5 miljónir) og ef maður fengi verkið á því verði, eða jafnvel þó maður bjóði meira og fengi það á eða aðeins yfir ásettu verði, þá sé síðan auðvelt að
selja það seinna á eðlilegra verði með nokkura milljóna króna gróða.Ég á því miður ekki milljónir á lausu akkúrat núna
![Megasmile :megasmile](./images/smilies/aiwebs_011.gif)
og vildi því benda á þetta. Vitið þið um fleiri dæmi um svona "secrets" hvernig maður getur grætt í verðbólgunni eða bara grætt almennt, væri til í að heyra fleiri dæmi, hef gaman af svona pælingum
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)