Smá off en samt on topic.
Af hverju er ríkið ekki búið að kickstarta umræðu um nýjan alþjóðaflugvöll og flutning á Reykjavíkurflugvelli?
Litli flugvöllurinn í Vatnsmýri er ekki að fara taka við af KEF ef allt fer í steik þar og næsti varaflugvöllur er Akureyri eða Egilsstaðir.
Það væri ekki óvitlaust að hafa varaflugvöll (sem gæti þessvegna verið betur skipulagður og notaður sem aðalflugvöllur) annarstaðar.
Með tilkomu Sundabrautar og tvöldum Hvalfjarðarganga þá væri í raun tilvalið að hafa flugvöll örlítið lengra en Akranes og þá væri fjarlægðin svipuð frá RvK og til KEF nema að það þyrfti ekki að keyra í gegnum haug af úthverfum til að komast inn í miðbæ.
Í raun yrði þetta til þess að gera Sundabrutina að framkvæmd sem væri virkilega þess virði að ráðast í og mundi skapa þvílíkan frið fyrir Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog fyrir bílaumferð en ég gæti ímyndað mér að KEF yrði alltaf notaður fyrir alla póst og vöruflutninga, einungis farþegaflutningar færu á nýjan stað.
![Skjámynd 2024-01-15 171500.png](./download/file.php?id=33077&sid=476a04447d813144415c7c678071e93c)
- Skjámynd 2024-01-15 171500.png (2.84 MiB) Skoðað 1348 sinnum