Stíflaður Epson Ecotank


Höfundur
Hizzman
Geek
Póstar: 885
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 157
Staða: Ótengdur

Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf Hizzman » Fim 05. Feb 2026 10:35

Er einhver að selja hreinsikit hér á landi? Þetta er vökvi, sprauta og slanga.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2892
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 556
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf Moldvarpan » Fim 05. Feb 2026 11:04

Ég gafst upp á mínum Canon bleksprautuprentana... hann var alltaf að stíflast, aðþví ég notaði hann ekki nógu mikið.

Það var nóg fyrir mig að skipta um blekhylkið, þá losnaði stíflan. Ég er alveg hættur að prenta út í dag, en nota stundum scannann sem er á prentaranum.




b3nni
Fiktari
Póstar: 57
Skráði sig: Fim 25. Sep 2025 21:18
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf b3nni » Fim 05. Feb 2026 11:08

Smá rant, maður getur átt kúlupenna í áratug og aðeins skrifað með honum og þá er hann kominn aftur í gang en ef maður kaupur hylki uppá tugi þúsunda á 8 lita prentara þá skemmast öll hylkin ef maður notar þetta ekki mánaðarlega, by design ?




ejm
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf ejm » Fim 05. Feb 2026 11:32

Ég er einmitt með ecotank, prentaði síðast eitthvað fyrir jólin 2024, og eyddi meiri tíma í að keyra self-clean en actually að prenta.
Ég nota hann eiginlega bara til að skanna, og sýnist blekið í áfyllingarflöskunum sem fylgdi með vera orðið þurrt. Algert rugl.



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 758
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 53
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf gRIMwORLD » Fös 06. Feb 2026 21:20

Ekki keyra endalaus self clean, það er video á youtube sem sýnir betri leið að þrífa hann (bara man ekki hvar)
Er með ET8550 sjálfur og hef þurft að hreinsa hann 2svar sinnum. Trickið er að það er "svampur" undir prenthausnum þegar hann er í park sem á það til að fyllast og það er hægt að hreinsa það varlega með pappír

Athugið ég get ekki borið ábyrgð á skemmdum prenturum vegna neðangreindra leiðbeininga. Ef þið eruð ekki viss með þetta þá leitið frekari upplýsinga áður en lengra er haldið.

Til að komast að þessu þá þarf að opna prentarann og taka hann úr sambandi við rafmagn þegar prenthausinn er á ferðalagi. Þá ertu með greiðan aðgang að þessum svampi.

Ég notaði eldhúspappír og leyfði honum rétt að leggjast ofan á svampinn til að draga í sig umfram blekið. Endurtók þetta nokkrum sinnum með hreinan pappír.

Að lokum er keyrt hreinsiprógram og það án gríns klárar með 100% útkomu í þetta skiptið.


9950X | 96GB | 2TB Gen5 | 3090 | ProArt X870 Creator


Viggi
Geek
Póstar: 842
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 137
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf Viggi » Fös 06. Feb 2026 21:29

Mikið er ég feginn að eiga ekki prentara og blekscamið sem fylgir þeim :money


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1070
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 385
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf Henjo » Lau 07. Feb 2026 18:18

Getur reddað þér 100% alcohol hreinsi (t.d. https://fondurlist.is/verslun/isopropon ... 98-500-ml/ )

Er sjálfur og með ET-7750 sem er 8 ára gamall. Hef notað hann helling en kemur öðru hverju smá stífla, þá sérstaklega í photo black sem er minnst notaður (er held ég bara notaður í gloss prent) en þá hef ég farið svona youtube hacks í bland við self cleaning.

Ekki ráðlast að eiga blekkprentara nema maður sé að prenta fullt reglulega. Þið sem eigið laser prentara, er það ekki málið? fyrir þá sem þurfa t.d. ekki litaprent og eru bara prenta basic.

Og já, fyrir þá sem prenta helling eins og ég sjálfur, þá er eco tanker algjör snilld og augljóst val yfir venjulega prentara með hylkjum. Eina vesenið er að það er erfiðara og erfiðara að redda bleki. TL sem eru því miður komnir með Epson umboðið frá Þór (algjörir meistarar sem voru þar) eiga ekki blekið og þarf ég að sérpanta það í gegnum skrifstofuvörur.
Síðast breytt af Henjo á Lau 07. Feb 2026 18:22, breytt samtals 3 sinnum.




playman
Vaktari
Póstar: 2050
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 82
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf playman » Mán 09. Feb 2026 13:02

Eða bara fara í laser.
Ég er búinn að hreynsa ógrinni af blek prenturum og segi alltaf þeim sem að eru með þá og nota þá nokkrum sinnum á
ári að hætta þessum rugl blek prenturum og fara í laser, þeir endast miklu lengur, tala nú ekki
um ef að fólk er eingöngu að nota þá fyrir texta og ekki ljósmyndir.
Ég er búinn að vera með sama laser prentaran í næstum 10 ár og er meira að segja á sama hylkinu!
Ég fékk þennan prentara á 2000kr í fjölsmiðjuni, hverrar krónu virði.


CPU: Intel Core i7-14700KF Icosa Core @ 3.4GHz RAM:32GB DDR5 6000MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
SSD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z790 Eagle AX GPU: NVIDIA RTX 3070Ti 8Gb
[Main screen:]LG UltraGear 32GP850-B 32" QHD nano-IPS [Secondary screen:] BenQ GW2455 - 24" 16:9 [Tertiary Screen:] BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9


ejm
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf ejm » Mán 09. Feb 2026 14:21

Ég átti einmitt laser prentara heillengi, og tók ecotank útaf einhverri litmyndaprentmaníu hjá dóttur minni. Nota hann núna mest sem skanna :)



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3776
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 135
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf Pandemic » Mán 09. Feb 2026 16:08

playman skrifaði:Eða bara fara í laser.
Ég er búinn að hreynsa ógrinni af blek prenturum og segi alltaf þeim sem að eru með þá og nota þá nokkrum sinnum á
ári að hætta þessum rugl blek prenturum og fara í laser, þeir endast miklu lengur, tala nú ekki
um ef að fólk er eingöngu að nota þá fyrir texta og ekki ljósmyndir.
Ég er búinn að vera með sama laser prentaran í næstum 10 ár og er meira að segja á sama hylkinu!
Ég fékk þennan prentara á 2000kr í fjölsmiðjuni, hverrar krónu virði.


Því miður eru laser prentarar á útleið. Standast ekki heilsuverndarkröfur á vinnustöðum og sumar umhverfisreglur. Var með epson pro blekprentara á stað þar sem ég vann og hann var algjör snilld og jafn snöggur og laser.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8783
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1409
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Stíflaður Epson Ecotank

Pósturaf rapport » Mán 09. Feb 2026 19:07

Pandemic skrifaði:
playman skrifaði:Eða bara fara í laser.
Ég er búinn að hreynsa ógrinni af blek prenturum og segi alltaf þeim sem að eru með þá og nota þá nokkrum sinnum á
ári að hætta þessum rugl blek prenturum og fara í laser, þeir endast miklu lengur, tala nú ekki
um ef að fólk er eingöngu að nota þá fyrir texta og ekki ljósmyndir.
Ég er búinn að vera með sama laser prentaran í næstum 10 ár og er meira að segja á sama hylkinu!
Ég fékk þennan prentara á 2000kr í fjölsmiðjuni, hverrar krónu virði.


Því miður eru laser prentarar á útleið. Standast ekki heilsuverndarkröfur á vinnustöðum og sumar umhverfisreglur. Var með epson pro blekprentara á stað þar sem ég vann og hann var algjör snilld og jafn snöggur og laser.


Ég hafði umsjón með útboði 2009-2010 þegar LSH skipti út 1250 prenturum og fór í 350 Prentský prentara í staðinn.

Þá var mikil umræða um þetta, ég vildi selja verkefnið með því að segja að borðprentari væri eins og að reykja... og mig minnir að niðurstaðan hafi verið að HP1018 og þessir vinsælustu borðlaserar hafi mengað sáralítið og ég mátti ekki selja verkefnið með þessum punkti.

Það var mikið pælt í þessum gæðavinklum í þessu útboði.

Sem mikill "útboðskarl" þá er basic krafa sem ég hef reynt að agitera fyrir er að einungis sé keyptur búnaður sem stenst evrópukröfur hvað varðar umhverfisvernd í bæði framleiðslu og notkun og sé með "type I" umhverfismerkingu eða vottun frá faggildri skoðunarstofu að búnaðurinn standist viðmið EU - https://www.hhc.earth/knowledge-base/ar ... clarations

Uppáhaldsmerkið mitt í þessu er "GS mark" s.s. vottun þýska vinnueftirlitsins um að búnaðurinn standist allar evrópukröfur og þýsk lög til vinunverndar.

https://www.tuv.com/content-media-files ... ark-en.pdf

https://www.efta.int/sites/default/file ... ummary.pdf