agnarkb skrifaði:Í mínum ungdóm voru allir bílar á nagladekkjum og sumir á keðjum, loftgæði voru almennt fín enda man ég eftir götusópum koma götuna hjá mér nokkrum sinnum í mánuði, nema þá kannski helst um allra köldustu mánuðina. Held því að nagladekk séu ekkert stærsti þátturinn í þessu, mig grunar að þetta sé þessi gífurlega aukning á þungaflutning innan borgarinnar sem byrjaði að aukast mikið eftir að strandsiglingar snarminnkuðu og svo spila inn í líka þessar endalausu byggingaframkvæmdir.
Í næstu götu við mig var gróðursæll blettur beint inn í miðju rótgrónuhverfi þar sem nú er verið að reisa mörg hundruð íbúðir, eiginlega bara nýtt hverfi inn í öðru hverfi. Þessu fylgja stórar vélar, sprengingar og allskonar jarðfvegsvinna. Það er búið að vera núna í næstum 4 ár moldarflag og sandhrúga í kringum allt vinnusvæðið sem þyrlast upp í hvert sinn sem keyrt er þarna framhjá og þetta er eins í öllum hverfum á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er ósköp einfalt, taka til eftir sig og þrífa borgarlandið og loftgæðin batna. Ef borgin gæti hætt þessu corporate blæti sínu og sleppa því að ráða einhverja dýra millistjórnendur og sérfræðingu úr einkageiranum og fengi til sín vinnandi fólk til að sópa göturnar þá myndi þetta vandamál hverfa mjög fljótt.
Ég ætla leyfa mér að nefna að árið 1985 var svona með þeim síðustu árum sem það voru keðjur í notkun á bílum í Reykjavík. En þá bjuggu 240þús manns á Íslandi. Gæti ímyndað mér að umferðin hafi verið talsvert minni þá. Tala nú ekki um að þá var ekki normal að hver einasta manneskja 17 ára og uppúr átti bifreið og keyrði henni útum allt.
En og aftur, mesta þessi svifryksmengun kemur frá stofnbrautum sem eru ekki á ábyrgð borgarinnar. En auðvitað er það stærsta memið að hata borgina. Ég er með spurningu, ef þetta er allt stórar vélar og jarðvegsvinnu að kenna, ásamt skorti á strandsiglingum, afhverju sjáum við þetta bara á veturnar? Afhverju fer loftgæði bara í algjört rugl samdægurs og allir fara á naggla? Afhverju er þetta þá ekki svona líka á sumrin?
Hérna er úrklippa úr gömlu blaði frá því í gamla daga (árið 1989), þegar allt var svo frábært. Þarna er verið að tala um þau hafi verið að kaupa mælitæki, svo maður veltir fyrir sér að fólk hafi ekkert verið að spá í þessu í gamla daga. Enda voru þetta líka tímar þar sem bílar voru brennandi blý útí andrúmsloftið og engum fannst neitt athugavert við það.

Við getum lifað í þeim fantasíu heimi þar sem það þarf bara sópa göturnar betur, og þá lagast þetta. Eða við getum faceað sannleikan og reynt að vera smá fullorðin.